Rúnar Alex ekki til FCK þar sem fyrrum liðsfélagi hans mun nú verja mark liðsins Danska meistaraliðið FC Kaupmannahöfn varð fyrir áfalli nýverið er markvörður liðsins meiddist illa og því hóf liðið leit að nýjum markverði. Var Rúnar Alex Rúnarsson, landsliðsmarkvörður Íslands og leikmaður Arsenal á Englandi, nefndur til sögunnar. Fótbolti 9. ágúst 2022 14:01
Man United hætt við að fá Arnautović eftir áhyggjur stuðningsfólks Í gær fóru þær fréttir á kreik að Manchester United vildi fá Marko Arnautović í sínar raðir. Það virðist sem sá áhugi hafi kólnað hratt þökk sé áhyggjum stuðningsfólks Man United sem og verðmiða leikmannsins. Enski boltinn 9. ágúst 2022 13:02
Bröndby fær hjálp lögreglu eftir lætin og skemmdarverkin á Parken Nágrannaliðin og erkifjendurnir FC Kaupmannahöfn og Bröndby mættust í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta um helgina. Líkt og svo oft áður sauð upp úr er Íslendinglið FCK tók á móti sínum fornu fjendum í Bröndby og vann öruggan 4-1 sigur. Fótbolti 9. ágúst 2022 12:31
Sænskt C-deildarlið telur að það hafi sett nýtt heimsmet Sænska knattspyrnufélagið Torns IF, spilar í sænsku C-deildinni en heldur því engu að síður fram að það hafi sett heimsmet. Félagið er þó ekki búið að hafa samband við Guinness Book of Records. Fótbolti 9. ágúst 2022 11:00
Trinity Rodman spurði hvort hún ætti að fá sér klippingu eins og pabbi sinn Bandaríska knattspyrnukonan Trinity Rodman hefur fyrir löngu skapar sér sitt eigið nafn í fótboltaheiminum með frábærri frammistöðu með Washington Spirit og með því að vera komin í bandaríska landsliðið fyrir tvítugt. Fótbolti 9. ágúst 2022 10:31
Barcelona reyndi að hræða De Jong til að losna við hann Frenkie de Jong vill vera áfram hjá Barcelona en Katalóníumennirnir vilja endilega losna við að borga risasamning hans. Nýjustu fréttir af þessari sápuóperu í Barcelona er að forráðamenn Barcelona hafi reynt að hræða De Jong í sumar um að samningur hans væri ólöglegur. Fótbolti 9. ágúst 2022 08:01
Thiago Alcantara frá í rúman mánuð Thiago Alcantara tognaði aftan í læri í jafntefli Liverpool gegn Fulham í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta karla um síðustu helgi. Fótbolti 9. ágúst 2022 07:01
Barcelona hefur ekki náð að nurla saman nægum pening Forráðamenn Barcelona hafa ekki náð að lappa nógu mikið upp á bókhald sitt til þess að geta skráð þá leikmenn sem félagið hefur keypt í sumar í leikmannahóp sinn fyrir komandi keppnistímabil. Fótbolti 8. ágúst 2022 23:22
Arnór Smárason: Þetta var í fyrsta skipti sem ég spila á þessum velli í meistaraflokki Skagamaðurinn Arnór Smárason skoraði sigurmark Vals á Akranesi í kvöld í sínum fyrsta leik á ferlinum á Akranesvelli. Hann var ánægður með leikinn. Sport 8. ágúst 2022 23:11
Arnautovic er ekki til sölu Marco Di Vaio, yfirmaður fótboltamála hjá ítalska félaginu Bologna, segir framherjann Marko Arnautovic ekki vera til sölu en fregnir bárust af því um síðustu helgi að Manchester United hefði boðið í austurríska landsliðsmanninn. Fótbolti 8. ágúst 2022 23:03
Umfjöllun og viðtöl: ÍA-Valur 1-2 | Valsmenn taplausir undir stjórn Óla Jó Valur fer vel af stað undir stjórn Ólafs Davíðs Jóhannessonar en liðið bar sigurorð af Skagamönnum, 2-1, á Norðurálsvellinum á Akranesi í kvöld. Íslenski boltinn 8. ágúst 2022 22:54
Fylkir nældi í stig gegn toppliðinu Fylkir og FH skildu jöfn, 1-1, þegar liðin áttust við í 13. umferð Lengjudeildar kvenna í fótbolta á Würth-vellinum í Árbænum í kvöld. Fótbolti 8. ágúst 2022 22:43
Lampard stoppar í götin í varnarlínu sinni Enski varnarmaðurinn Conor Coady er genginn til liðs við Everton á lánssamningi frá Wolves en lánið gildir út yfirstanandi keppnistímabil. Fótbolti 8. ágúst 2022 22:27
„Við erum öflugir í lok leikja“ „Mér líður rosa vel. Þetta eru bestu sigrarnir, að vinna með einu marki í restina. Ég held að þetta sé níunda markið sem við skorum í sumar á síðasta korterinu þannig við erum öflugir í lok leikja,“ sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari Keflvíkinga, sáttur eftir 2-1 sigur á Leikni í kvöld. Fótbolti 8. ágúst 2022 22:06
Ólafur Jóhannesson: Þá líður mönnum betur og þá brosa allir eins og ég geri núna Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, var glaður í bragði eftir 2-1 sigur sinna manna á Akranesi í kvöld. Annar sigurleikur Vals sem unnu FH í síðustu umferð. Sport 8. ágúst 2022 22:02
Umfjöllun og viðtöl: Leiknir-Keflavík 1-2 | Frans tryggði Keflavík sigur á síðustu stundu Keflavík sótti þrjú stig þegar liðið mætti Leikni Reykjavík í 16. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Domusnova-vellinum í Breiðholti í kvöld. Sigurmark Keflavíkur kom eftir klaufagang í vörn Leiknis í uppbótartíma leiksins. Íslenski boltinn 8. ágúst 2022 21:17
Bjarni rak smiðshöggið á stórsigur Bjarni Mark Antonsson setti jarðaberið á kökuna þegar Start fór með sannfærandi sigur af hólmi á móti Bryne í norsku B-deildinni í fótbolta karla í kvöld. Fótbolti 8. ágúst 2022 20:16
Kristian Nökkvi lék lungann úr leiknum Kristian Nökkvi Hlynsson lék í 85 mínútur sem sóknartengiliður fyrir Ajax II þegar liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Telstar í hollensku B-deildinni í fótbolta karla í kvöld. Fótbolti 8. ágúst 2022 20:04
RB Leipzig að landa Werner Timo Werner mun ganga til liðs við RB Leipzig frá Chelsea í vikunni en þýska félagið mun greiða um það bil 30 milljónir evra fyrir hann. Fótbolti 8. ágúst 2022 19:35
Brynjar Björn hafði betur gegn fyrrverandi lærisveini Örgryte, lið Brynjars Björns Gunnarsson, hafði betur með einu marki gegn engu þegar liðið sótti Valgeir Valgeirsson og félaga hans hjá Örebro heim í sænsku B-deildinni í fótbolta karla í dag. Fótbolti 8. ágúst 2022 18:56
Stefán Teitur lagði upp í sigri Stefán Teitur Þórðarson átti stoðsendinguna eitt marka Silkeborgar þegar liðið bar 3-1 sigur úr býtum í leik sínum við AaB í fjórðu umferð dönsku efstu deildarinnar í fótbolta karla í dag. Sport 8. ágúst 2022 18:48
Albert byrjar nýtt tímabil afar vel Albert Guðmundsson, landsliðsamaður í fótbolta, skoraði tvö marka Genoa þegar liðið lagði Benevento að velli, 3-2, í 64 liða úrslitum ítölsku bikarkeppninnar í dag. Fótbolti 8. ágúst 2022 17:47
Evrópumeistarinn Parris til liðs við Man United Á meðan karlalið félagsins er tilbúið að fá hvern sem er til liðs við sig þá hefur kvennalið Manchester United sótt enska landsliðskonu sem varð Evrópumeistari í sumar. Enski boltinn 8. ágúst 2022 17:01
Stefán Árni ekki með gegn ÍBV vegna agabanns KR vann 4-0 sigur á ÍBV í Bestu deild karla í fótbolta á sunnudagskvöld. Athygli vakti að Stefán Árni Geirsson, sem hefur verið að koma til baka eftir meiðsli, var ekki í leikmannahóp KR. Hann var í agabanni. Íslenski boltinn 8. ágúst 2022 14:31
Leiknir getur sent FH í fallsæti með sigri á Keflavík Leiknir Reykjavík tekur á móti Keflavík í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Fari svo að heimamenn landi sigri þá fara þeir upp fyrir FH í töflunni og senda Hafnfirðinga þar með í fallsæti. Íslenski boltinn 8. ágúst 2022 13:01
Barcelona segir núverandi samning Frenkie de Jong ólöglegan Stjórn Barcelona vill ógilda núverandi samning Frenkie de Jong þar sem hún telur að samningurinn sé ekki löglegur. Forverar núverandi stjórnar voru við stjórnvölin er skrifað var undir og segja allt hafa verið gert eftir lögum og reglum. Núverandi stjórn er tilbúin að fara með málið fyrir dómstóla. Fótbolti 8. ágúst 2022 12:00
Sakaður um að hafa sparkað í kviðinn á ófrískri kærustu sinni Nico Schulz, leikmaður Borussia Dortmund og þýska landsliðsins, hafnar ásökunum um heimilisofbeldi sem fyrrum kærasta hans hefur sett fram. Fótbolti 8. ágúst 2022 09:30
Rabiot á að leysa vandræðin á miðsvæði Man United Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United vill fá hinn 27 ára gamla Adrien Rabiot frá Juventus. Á hann að leysa vandræði liðsins á miðsvæðinu en Man United hóf ensku úrvalsdeildina á 1-2 tapi á heimavelli gegn Brighton & Hove Albion. Enski boltinn 8. ágúst 2022 09:14
Sjáðu hjólhestinn hjá Messi í draumabyrjun hans á nýju tímabili Argentínski knattspyrnumaðurinn Lionel Messi hóf um helgina annað tímabil sitt í frönsku deildinni og það er óhætt að segja að hann hafi byrjað það á eftirminnilegan hátt. Fótbolti 8. ágúst 2022 08:01
Eggert Aron: „Þetta sendir okkur í toppbaráttuna“ Eggert Aron Guðmundsson var að öðrum ólöstuðum maður leiksins þegar Stjarnan vann Breiðablik 5-2 í 16. umferð Bestu deildar karla fyrr í kvöld. Kappinn skoraði tvö mörk og var duglegur í að hjálpa til í varnarleiknum og átti gott samspil við félaga sína. Fótbolti 7. ágúst 2022 21:35